*grenj* Ég varð fyrir því að lemja einhvern *grenj*

Vona að enginn sé að falla fyrir þessari eftirá-skýringu. Hann segir hann að löggan hafi verið að ögra sér, á fréttamyndunum sést hinsvegar að það er löggan sem er verið að ögra. Leit svona dáldið út eins og hann væri að reyna að mana lögguna upp í að eiga frumkvæði að einhverjum slagsmálum, þegar það gekk ekki varð hann bara að byrja þetta sjálfur...

mbl.is Missti stjórn á skapi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skopmyndir daglega

Það ætti að búa til sér dálki í öllu helstu dagblöðum heims og birta grínmyndir af öllum trúarbrögðum heimsins einu í einu allan ársins hring.

Ég er reyndar mjög hræddur um að ef Morgunblaðið hefði ákveðið að stofna til skopmyndasamkeppni af Jesús áður en þetta rugl hófst með Múhameðsmyndirnar hefðu einhverjir Íslendingar gert stórmál úr því. Skrifað harðorð bréf og blótað mjög hátt í hljóði.

Munurinn liggur bara í menningunni, við blótum í hljóði en þetta fólk hoppar út á götu og brennir fána. Við erum nákvæmlega ekkert betri en þau. 


mbl.is Skopmyndum mótmælt í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband